laugardagur, apríl 10, 2004

Skáldskapur II

Lögreglumenn líta á þá látnu,
sumir lufsast og kúgast,
á meðan aðrir hunskast út
með hræðilegan hryllingsglampa í augunum.
Rist. Rifin. Tætt.

En hann starir en á suðurvegginn
með brennandi sígó á milli fingrana
og kalt kaffi í hægri hönd.
Ei kvíðinn né hræddur,
bara annars hugar,
með stillimyndina á
"Var það ég? Eða var það annar?"

Engin ummæli: