mánudagur, júní 13, 2005

Hvar skal byrja?

Hvað skal skrifa? Á hvaða sprengifima málefni skal maður trítla varlega á? Fóstureyðingar? Kriztnitrú? Sinnuleysi og aumingjaskap? Eða bara byrja á einhverju auðveldu einsog Írakstríðið? Þó svo að landið innihaldi meiri nítrógliserín og mun meiri líkur eru á gífurlega öflugum kjarnahvörfum nú en fyrir 18. mars 2003, þá finnst mér það málefni heldur léttvægt kaffihúsafóður sem maður afgreiðir í einni svipan, en þó ekki með neina sértæka lausn á þessu tiltekna vandamáli, en er í afar stuttu máli þessi: helvítis kanarnir!

Þetta er nokk svipuð afstaða og margir íslendingar höfðu á tjöllunum og ameríkönunum 1941 eða þar um kring. Litið var á þessa fjandans jórturleðurtyggjandi beljur frá BNA sem flein í síðu vel þenkjandi einstaklinga, að frátöldum þessum bölvuðu nasistum auðvitað sem allir nema þeir sjálfir hötuðu af lífs og sálarkröftum. En í Írakstilfellinu (auk viðhorfs BNA gagnvart tilfelli tveggja stríðandi fylkinga annarstaðar í Miðausturlöndum, sér í lagi Palestína og Ísrael) eru kanarnir hataðir mest. Sá fúli fnykur sem eitt sinn gaus frá hinu rúmlega sjötuga ára gamla líki sem nasistaáróðurinn og -hræðslan var og það hatur sem heimurinn hafði gagnvart þessum hýru, fölu og ljóshærðu fábjánum og rómantíkerum sem gerðu ekkert annað en að fabúlera hvað þeir væru stórkostlegir og hvað hvíti maðurinn væri ´bestastur´ fölnar í samanburði við það gífurlega hatri, nei köllum það eitthvað saklausara svo ég verði ekki brennimerktur sem öfgamaður, ósætti sem heimurinn hefur gagnvart Bandalagi Norður Ameríku, leiðtogum þess og fyrirtækjum. Óskum þess heitt að fá að taka þessa menn og að messa yfir þeim um hvað má og hvað má ekki. Talandi. Mjög. Hægt. Kannski með hreim og hrynjanda Ted sem túlkaður var svo stórkostlega af stórleikaranum Keanu Reeves í hinum vinsælu "what if?"-unglinga-gaman-sci-fi-búningadrama-tvíeyki Bill&Ted´s Excellent Adventure og Bill&Ted´s Bogus Journey (vonir eru bundnar við að George Lucas gæti verið til í að toppa þetta meistaraverk og gera þriðju myndina; Bill&Ted´s Politicial Odyssey):

..."Hey, you guyyys, you´re like supposed to stand for something man, dude? Man. I mean; what the heck?" Segir Bill og Vondi Pólítiski Leiðtoginn (VPL) svarar:"Yes, we stand for liberty, democracy and freedom! Nine-eleven, never forget! We shall spread happiness like fairy-dust everywhere and perform other miscalleny from some twisted tale of unbeliaveble fantasy which I choose to call THE reality and of which I of course impose this particular reality on the rest of the world for it is my God given right as an American citizen! For Freedom!" og þá tekur Ted við og segjir hálfskríkjandi "That´s right man! Excellent choice of words dude!" en síðan segjir hann alvarlegur í bragði "But the wrong set of answers motherfucker!" og heggur svo annan fótinn af og VPL öskrar einsog verið sé að slátra svíni og Bill segjir "Dude! Excellent killer move, Ted!" , "Thanks Bill!" Bill hellir siðan bensíni á VPL raular einsog Mark E. Smith lag eftir Marky "oh baby, baby", sker af honum eyrað, skýtur af honum hendina og kveikir síðan í honum, síðan endar hún á sódómískum tilbrigðum Teds gagnvart Bill, en Bill segjir "Dude! I´m, like, not gay! Geez!" [feidar út í dósahlátri] ENDIR

Stjórnleysi í Undralandi
En hvað með þessa atvinnumótmælendur? Þessir anarkistar, kommar, marxistar og sósíalistar?! Þessar ansvítans fyllibyttur og kaffihúsadólgar sem tala svo hátt en ekki svo snjallt? Eigum við stoltu og sjálfstæðu íslendingar að leyfa þeim að vaða uppi með sínar ókristilegu úthrópanir, ábendingar, athugasemdir, hávaða og skoðanir. Auk þess haga þeir sér svo skringilega, smá vottur af satanísku Sóvetrússlandi og öll lesa þau bækur eftir höfunda sem hafa ekki verið samþykktir af útvöldum smáborgurum, hlusta á tónlist sem einhverjar prímadonnur, dramadrottningar og hórur úr röðum svokallaðar tónlistarelítu hafa ekki heyrt og hvað þá lagt sína góðviljugu blessun yfir því með því til dæmis að, ég veit það ekki, skíta á umbúðirnar og skeina sér með fötum listamannsins. Við getum ekki látið þessa vinstrisinnuðu slefbera og kjeddlingar vaða uppi með sínar, ég fæ hroll bara við að stafa þetta, skoðanir og of stór hluti af þeim efast, virkilega efast um lögmæti og velviljun okkar hæruáverðuga ríkistjórn, forsætisráðherra og meira segja Alþingi! Af með höfuðin! Fussumsvei, abbababb, obbobbobb og allt það.

Ef eitthvað fer alvarlega úrskeiðis í landinu sem maður býr í og íbúar í þessu tiltekna landi vilja fá örugg svör við spurningum sem brenna á tungum borgarana er tengist þeirru alvarlegu uppákomu, og ef þau fá enginn góð svör eða léleg og illa útfærðar útskýringar við spurningu á borð við þessa "Hvernig gat svona stór árás átt sér stað gegn þjóð sem skarar framúr öllum öðrum þjóðum er kemur að vopnum, vopnaburði og vopnvaldi, upplýsingum, reglugerðum og löggæslu, ekki sé minnst á þetta tiltekna land sé án efa máttarstólpi nútímaauðvaldshyggju og er iðn- og tæknivæddasta þjóð sem nokkurn tíman hefur verið uppi?" og fengið svar á borð við"Því ógnin leynist allstaðar, við verðum að hræðast fólkið sem við þekkjum ekki... því það er á móti frelsi og lýðræði... þetta er svona einfalt, við á móti þeim" eða álíka, þá er ekkert svo óeðlilegt að véfengja sumt/margt/allt sem valdshafandi valdstjórn segjir og gerir.

Þegar eitthvað er virkilega AÐ og það virðist vera að enginn opinber útskýring getur dugað til að friðþægja múginn, eða vissa hópa t.a.m. óþæga vinstrisinnaða atvinnumótmælendur, þá á sumt fólk til að benda puttanum á hugsanlega orsök og afleiðingu, hverjir stóðu fyrir því og hverjir græða á því. Síðan fer eftir því á hvern hópinn þú hlustar þegar þú ákveður hvaða tilteknum hóp þetta er fyrst og fremst að kenna, og ég biðst velvirðingar á alhæfingunum; kommarnir kenna auðvaldinu um, anarkistar álasa stjórnvöld, marxistar líta á þetta vandamál með augum sögulegra og díalektískra efnishyggju þannig að hér sé eingöngu um að ræða stéttarátök og sósíalistar gjóa augunum að hinum risavaxna (hergagna)iðnaði sem virðist sjúga allan pening úr velferðakerfinu.

Hvernig, fyrst að hinn ógleymanlegi hugbreytingadagur er tímabundið þessu eintali mínu, hvernig fóru fjórar flugvélar sem voru á "government-approved"-flugleið að því að vera ekki grunsamlegar í meira en klukkutíma þegar þessar flugvélar voru langt frá upprunalegu flugleiðinni án þess að ekkert hafi verið gert?
a)hrapaleg mannleg mistök,
b)hryðjuverkahópurinn sem stóðu fyrir þessu voru með innherja á nokkrum æðri stöðum einsog FAA, Pentagon og Hvíta Húsið (takið út og/eða hendið inn stofnun af ykkar eigin vali) eða
c)Starfsmenn hjá FAA létu vita af þessu til allra helstu ríkisstofnana (Pentagon, CIA...) og [setjið inn atburðarrás af eigin vali].

Mín skoðun er máske eingöngu byggð á hreinni tilfinningu og rökum sem virðast vera samansafn af ótrúlegum minniháttar tilviljunum: Eitthvað er að og vandamálið má finna í öllum ríkistjórnum, því einsog allir vita, og ég geri hin ódauðlegu orð Bill Hicks að mínum eigin, "All governments are lying cocksuckers!"

Þetta gildir einnig hér á okkar saklausa, fagra og föngulega fróni, allir stjórnmálamenn eru lygarar. Það er eitt sem þeir þurfa rétt einsog heilabilað fólk og geðsjúklingar, þeir þurfa stögugt aðhald og eins óskipta athygli og við venjulega fólkið getum veitt þeim.

Röflað í E-moll
Nú er maður búinn að pústa og þá er ef til vill hægt að snúa sér að innlendum málefnum. En best að tengja það við það sem ég byrjaði á og síðan röfla um eitthvað allt annað. Ísland studdi innrásina í Írak, þetta vitum við öll en þar með er ekki sagt að Íslendingar allir studdu þessa innrás og kannanir hafa sýnt trekk í trekk að svo er alls ekki. Knæpuspjall við drykkjufélaga hefur einnig leitt til þessara sömu niðurstaða og líka í þau fáu skipti sem ég hef orðað þetta við samstarfsmenn mína, enginn, ekki neinn hefur verið sammála þeim Halldór "Sjáið mig karlmanninn" Ásgrímsson og Davíð "Kjarna" Oddsson. En þrátt fyrir gífurlegt mótlæti í formi formlegra mótmæla samlanda mína á Lækjartorgi og annarstaðar þá studdum við innrásina og styðjum einnig hina svokallaða uppbyggingu í Írak, en fyrir hvern er verið að byggja upp og hvað er verið að byggja þarna? Kannski stóriðju, virkjanir, olíuborpallar og einnig hótel, skemmti- og veitingastaði til að taka við öllum þessum ferðamönnum sem koma eftir 10 ár til að skoða rústirnar og afmynduðu Írösku börnin. Þannig að vandamálið er ekki lengur "kanarnir" beint heldur: Helvítis stórfyrirtækin og hlutahafar þess.

Nú í sumar munu verða efnt til stórkostlegra mótmæla og beinna aðgerða til að annaðhvort a)hindra byggingu Kárahnjúkavirkjun eða b)tefja framkvæmdirnar að einhverju leyti. Þetta styð ég. Því um leið og þeir, Orkuveitan, ríkistjórnin, bankarnir og aðrir peningaplokkarar, geta komist upp með þessa virkjun og síðan álver í Reyðarfirði, þá geta þeir komist upp með að nauðga náttúrunni að vild og skellt upp álver í hvaða krummaskuði sem er, s.s. Húsavík. Ál fyrir fisk.

Hvað þurfum við til að þessir háttsettu veruleikafirrtu leikskólakrakkar hlusti okkur? Þarf að hóta sjálfsmorði og píslarvættisdauða einsog Sigríður Tómasdóttir? Nei, nema í einhverjum grófum tilfellum sem ég vona að komi ekki upp. En við megum ekki segja eitthvað eða skrifa eittvað og vonast til þess að iðnaðar- eða umhverfisráðherra hlusti eða lesi það sem við höfum að segja þau verða að heyra hvað við höfum að segja.

Ár eftir ár er það hamrað á okkur hvað við höfum það gott, hvað við erum rík, hvað kaupmáttur okkar er rosalegur og allt það fram eftir götunum. En samt er talað í sömu andrá hvað við þurfum nauðsynlega á stóriðju að halda. Vatt ðe fokk? Til hvers? Við höfum það gott en ekki nógu gott? Er það málið? Það virðist vera algjör lífsnauðsyn fyrir Íslending til að vera Íslendingur að sökkva sér í lán og skuldir til þess að lifa lífi sem við höfum ekki efni á. Það eru til hedónistar, nautnaseggir, fólk sem elskar góða hluti og svo eru til masókistar, fólk sem elskar að meiða sig eða láta meiða sig. Íslendingar eru masóhedónistar. Við vitum að við höfum ekki efni á þessu en þjáumst með bros á vör þegar við fáum reikninga sem við ráðum ekki við.

"Þessi mánaðarferð til Mallorca er vel þess virði að vera gjaldþrota!"
"Þessi 8 milljón króna jeppi er vel þess virði að lenda í fangelsi fyrir!"


En er ég með einhverjar lausnir á þessu? Auðvitað ekki! Altæk lausn er ekki til. En það er eitt sem við þurfum að gera, það er að beina sjónum okkar að stjórnmálum og stjórmálamönnum. Þeir segja að við höfum vit til að velja þá en ekki vit fyrir okkur sjálf! Bull. Það er ekki nóg að kjósa þessa fábjána á þing, það þarf að fylgjast með því hvað þeir gera, rétt einsog þeir fylgjast með því hvað við gerum. Það má nú athuga hvað þú lesandi góður ert að gera á netinu án þess að fá dómsúrskurð. Öll nútímalýðræðisríki eru að einhverju leyti fasistaríki. Það var ekkert svo augljóst hér á Ísalandi, en tímarnir breytast og valdafíknin með. Á að láta vaða yfir mann? Eða er sinnuleysi og aumingjaskapur málið?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá Þórður.. af hverju ertu ekki að skrifa í blöðin????????????

Nafnlaus sagði...

Hvað, og eyðileggja möguleika hans á að verða forseti einn daginn :D

Nafnlaus sagði...

Forseti/Einræðisherra